It´s Britney bitch...
Fékk þetta blogg stuð alltíeinu í mig, og það kl.hálf12 á sunnudegi (Y) En allavegana ætla ég að reyna að lýsa svona síðustu viku því hún var ææði ! MA byrjaði á þriðjudeginum með busun og já get sagt að það var frekar vandræðalegt fyrir mig Möggu ÓlaDag Pálma Margréti og Önnu Karen ! Við vorum tekin spes niðrí kvos og áttum þar að steikjast eins og beikon og syngja höfuð herðar hné og tær fyrir framan aaalla, misstum af tíma en só.

Svo á miðvikudaginn var þessi aðalbusun, allir bekkirnir með atriði og dansa og svona sem var ekkert smá gaman en fokk hvað ég ruglaðist ! 1.I voru býflugur og gerðum geðveikan dans og lærðum fullt af söngvum, hesta-jói stóð nú uppúr
fórum svo í réttir og vorum flokkuð með öllu tilheyrandi, stuð sko ! löbbuðum um akureyri og á leiðinni stoppuðum við á mörgum stöðum, svona til að kynna Akureyri fyrir aðkomufólki. Enduðum síðan á að labba upp menntaveginn sem reyndi nú alveg á þolið haha en vá hvað þetta var allt svo skemmtilegt, hefði samt ekkert á móti svona busun eins og vma krakkarnir fengu...
Byrjaði að æfa dans á fimmtudaginn með Möggu og Kollu sem er æði, erum samt slakar í skiptisporunum sko
á föstudagskvöldinu fór ég til Heiðdísar með Möggu Kollu og Ásdís og vorum bara rólegar, hlusta á tónlist og svona krúttlegt. Fór svo smá á rúntinn með Birni Atla og Kollu. Svo komu nokkrir til Heiðdísar seinna um kvöldið og þá var dansað hahah, fór síðan heim um 2. Ágætt kvöld.Busun síðan í fyrra
Í gær var önnur dansæfing sem gekk aðeins betur en fyrsta
skrapp með Kollu í sund og fórum til Möggu að borða eftir sundið. Fórum smá uppí KA að horfa á handbolta, slakur leikur fannst mér. Okey þetta er orðið langt blogg en jáá kvöldið var skemmtilegt, hittumst hjá Heiðdísi og máluðum okkur og fórum svo til Árna og þar var stuð sko
kl.svona 12 voru örugglega allir unglingar akureyrar inni hjá honum og vá hvað var gaman, fórum svo aðeins í partý í næsta húsi og svo var rekið út hjá Árna um hálf2, gisti svo hjá Heiðdísi
skondið kvöld.
Heyrðu já ! ég á fullt af myndum í tölvunni sem ég verð að fara að setja inná, á samt örugglega aldrei eftir að gera það (Y) Helen